Frönsku húsin
Endurreisn gamalla húsa á Fáskrúðsfirði
Þéttbýlið í Fáskrúðsfirði var áður kallað Búðakauptún. Fjöldi gamalla húsa hefur verið endurbyggður og setja þau skemmtilegan svip á bæinn.
Búðakauptún var um langt skeið aðalbækistöð franskra útgerða sem gerðu út frá bæjum á norðurströnd Frakklands og eru ýmsar minjar á staðnum eftir aldalanga dvöl þeirra.
Helstu hús sem Frakkar létu reisa, byggð á árunum 1896 til 1907 hafa verið gerð upp eða endurbyggð frá grunni. Endurreisnarstarfinu stýrði Minjavernd hf. í samstarfi við Fjarðabyggð.
Þekktast þessar húsa er vafalaust Franski spítalinn, en auk hans hafa Læknishúsið, Sjúkraskýlið, Litla kapellan og Líkhúsið einnig verið færð í upprunalegt horf.
Franski spítalinn var skömmu fyrir síðari heimsstyrjöld tekinn niður og fluttur á Hafnarnes, við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð. Var búið í húsinu fram á áttunda áratug síðustu aldar og fór það síðan í eyði.
Frönsku húsin voru formlega opnuð sumarið 2014. Í þeim er nú starfrækt Fosshótel Austfirðir, veitingastaðurinn l'Abri og safnið Fransmenn á Íslandi.
Frönsku húsinn hlutu menningarverðlaun Evrópusambandsins árið 2014, Europa Nostra og er þetta jafnframt fyrsta verkefnið hér á landi sem hlýtur þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Nánar um Frönsku húsin (pdf)