Sandfell Fáskrúðsfirði

Jarðfræði landsins í nágvígi

Sandfell nefnist líparítfjall (743 m) sunnan Fáskrúðsfjarðar og má kalla það dæmigerðan bergeitil. Í suðurhlíðum fjallsins getur að líta hvernig bergeitillinn hefur lyft upp basaltþekjunni hið efra. Bergeitillinn er talinn vera 600 m þykkur og eitt besta sýnishorn frá tertíertíma á norðurhveli jarðar.

Mjög skemmtileg og falleg gönguleið er upp á Sandfellið sem tekur 2-3 klst.