Stórakerald
Steðji framundan
Stöðvarskarð.
Fáskrúðsfjörður frá Stöðvarskarði

Fjöllin í Stöðvarfirði

Súlur fremstar meðal jafningja

Fyrir áhugamenn um fjallgöngur er fjallahringurinn í Stöðvarfirði með áhugaverðari stöðum til slíkrar iðju. Ber þar fremstan að telja meðal jafningja Súlur, einkennisfjöll staðarins sem er mjög krefjandi gönguleið og aðeins á færi reyndra klifurkappa. Einnig má nefna Kumlafell, en þar getur að líta gat efst í fjallinu og sést í gegnum það til Fáskrúðsfjarðar. Beint fyrir ofan þorpið er fjallið Steðji. Við rætur þess eru Steðjatjarnir en ofar Stórkerald og Tyrkjaurð svo eitthvað sé nefnt.