Góð aðstaða er á tjaldsvæðinu á Fáskrúðsfirði m.a. sturtur, snyrting, rafmagn og losun fyrir húsbíla.
Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi rétt innan við byggðina.
Séð yfir tjaldsvæðið og út Fáskrúðsfjörð.

Fáskrúðsfjörður

Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við Ósinn, rétt innan við byggðina.

Tjaldsvæðið er rétt innan við byggðina og þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og losun fyrir húsbíla. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er starfandi á sumrin í Fosshótel Austfirðir.

Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:

Salerni, kalt og heitt vatn, ruslagámar, klóaklosun fyrir húsbíla, rafmagn, sturta, innisundlaug (1,5 km), heitir pottar (1,5), bekkir og borð, veitingahús (800 m), kaffihús (800 m), vínveitingar (800 m), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (700 m), fjallasýn, gönguleiðir, leikvöllur (1 km), veiði, heilsugæsla (1 km).

Opinn eldur bannaður, hundar í bandi leyfðir.

Landamerki er rekstraraðili tjaldsvæðisins. 

Þjónusta tjaldsvæðisins er frá 1. júní - 1. september

Verðskrá:

Fullorðnir 1.500 ISK

Eldri borgarar og öryrkjar 1.000 ISK

Rafmagn 1.000 ISK

Frítt fyrir börn undir 14 ára aldri

Heimilt er að hafa hunda á tjaldsvæðum Fjarðabyggðar, svo framarlega sem þeir eru hafðir í ól. Lausaganga hunda er óheimil í Fjarðabyggð nema á skilgreindum hundasvæðum.

Upplýsingar

Heimilisfang Óseyri
Staður 750 Fáskrúðsfjörður
Sími +354 776 0062