Stöðvarfjörður
Tjaldsvæðið stendur við fallegt skógræktarsvæði með grillaðstöðu og leiktækjum
Tjaldsvæðið er við austurenda byggðarinnar, með salerni, rafmagni og losun fyrir húsbíla. Það stendur við fallegt skógræktarsvæði með grillaðstöðu og leiktækjum. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er opin allt árið í Brekkunni.
Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:
Salerni, rafmagn, upplýsingamiðstöð (600 m), ruslagámar, klóaklosun fyrir húsbíla, bekkir og borð, grillaðstaða, fjallasýn, leikvöllur, íþróttavöllur, sundlaug (500 m), heitir pottar (500 m), veitingahús (600 m), kaffihús (600 m), vínveitingar (600 m), dagvöruverslun (600 m), bensínstöð (700 m), gönguleiðir, veiði, heilsugæsla (500 m).
Opinn eldur bannaður, hundar í bandi leyfðir.
Landamerki er rekstraraðili tjaldsvæðisins.
Tjaldsvæðagestum er bent á að ekki er heitt vatn á tjaldsvæðinu, en sundlaug Stöðvarfjarðar er aðeins í 500 m fjarlægð.
Þjónusta tjaldsvæðisins er frá 1. júní - 1. september
Verðskrá:
Fullorðnir 1.500 ISK
Eldri borgarar og öryrkjar 1.000 ISK
Rafmagn 1.000 ISK
Frítt fyrir börn undir 14 ára aldri
Heimilt er að hafa hunda á tjaldsvæðum Fjarðabyggðar, svo framarlega sem þeir eru hafðir í ól. Lausaganga hunda er óheimil í Fjarðabyggð nema á skilgreindum hundasvæðum.
Upplýsingar
Heimilisfang | Fjarðarbraut |
---|---|
Staður | 755 Stöðvarfjörður |
Sími | +354 776 0023 |