Steinbginn í Álftafelli við Jafnadal

Steinboginn Jafnadal

Einstaklega heillegur og fagur steinbogi

Í hlíðum Álftafells er einstæður steinbogi sem gaman er að skoða. Boginn er afar heillegur og þykir með þeim flottari á landinu. Álftafell gengur upp af Jafnadal, sem gengur inn af Stöðvarfirði. Á leiðinni er klettaþyrpingin Einbúi, sem samanstendur af stóru sérstæðu bjargi.