Stórkerald Stöðvarfirði.

Stórakerald og Tyrkjaurð

Söguminjar á Stöðvarfirði

Framan í fjallinu Steðja, sem er fyrir ofan þorpið, er stór geil inn í fjallið sem heitir Stórkerald. Þangað er sagt að Stöðfirðingar hafi flúið undan Tyrkjum og rutt síðan yfir þá grjóti þegar þeir sóttu að þeim. Urðin framan við Stórkeraldið heitir því Tyrkjaurð.