Skíðareglur 

Hvað má og hvað má ekki

Reglur Alþjóða skíðasambandsins (FIS)

1. Tillitsemi.
Skíða- eða snjóbrettamaður skal hegða sér á þann hátt að hann stofni ekki öðrum í hættu, valdi óþægindum eða skaða.

2. Stjórn á hraða
Skíða- eða snjóbrettamaður skal ávallt hafa fullt vald á hraðanum. Hann skal ekki fara hraðar en geta hans leyfir og aðstæður hverju sinni, svo sem veður, færi og fjöldi í brekkum.

3. Að velja sér leið.
Sá sem kemur niður brekku eða aftan að öðrum skíða- eða snjóbrettamönnum skal velja sér leið þannig að hann stofni ekki þeim sem fyrir framan eru í hættu.

4. Framúrtaka.
Fara má framúr eða framhjá öðrum skíða- eða snjóbrettamanni fyrir ofan hann eða neðan, hægra eða vinstra megin, að því tilskildu að sá sem farið er framúr eða framhjá hafi allt það svigrúm sem hann þarf.

5. Að fara inn í eða vera á merktri braut.
Sá sem fer inn í merkta braut eða leggur aftur af stað eftir að hafa stansað eða sveigt upp á við skal líta vel í kringum sig og ganga úr skugga um að hann stofni hvorki sjálfum sér né öðrum í hættu.

6. Stöðva í brekkum.
Skíða- eða snjóbrettamaður skal ekki stansa þar sem braut er þröng eða útsýni takmarkað nema brýna nauðsyn beri til. Ef hann dettur skal hann færa sig úr brautinni eins fljótt og hann getur.

7. Gengið upp eða niður brekku.
Skíða- eða snjóbrettamenn sem fara fótgangandi upp eða niður brekku skulu ganga í jaðrinum á merktum brautum.

8. Leiðbeiningar á skiltum.
Skíða- eða snjóbrettamenn skulu fara í einu og öllu eftir leiðbeiningum á skiltum sem hafa verið sett upp í brekkum.

9. Aðstoð.
Ef slys ber að höndum  skulu allir veita þá aðstoð sem þeir geta.

10. Að gefa sig fram eftir slys.
Allir skíða- eða snjóbrettamenn sem verða vitni að eða lenda í slysi skulu gefa sig fram, án tillits til þess hvort þeir bera ábyrgð á slysinu eða ekki.

Páskar 2008 023

TAKTU EFTIR!

Mundu eftir hjálminum.

Það er skylda að hafa öryggisól á brettum til að fá aðgang að lyftum.

Öll umferð vélsleða og annara ökutækja er bönnuð utanvegar við skíðasvæðið.

Brettafólk á að vera með annan fótinn lausan þegar farið er í og úr lyftu einnig er ekki heimilt að fara í lyftur á einu skíði.

SKÍÐAMIÐSTÖÐIN ODDSSKARÐI