Blind

06.07.2016 - 27.07.2016

Klukkan 12:00

06.07.2016

Óvenjulegustu tónleikar landsins þar sem gestir upplifa einstaka  tónleika með bundið fyrir augun.

Ævintýraheimur sem þú gleymir ekki!  Miðvikudagar í júlí kl. 12:00 – Tónlistarmiðstöð Austurlands Eskifirði.  Súpa og brauð frá Randúlfs sjóhúsi innifalið – aðgangseyrir kr. 2.000.-

Einnig hægt að kaupa miða á alla miðvikudagstónleikana á kr. 6.500.-

forsala á blind@jonkarason.is

BLIND tónleikarnir verða í hádeginu á miðvikudögum líkt og síðastliðin sumur í Tónlistarmiðstöð Austurlands. Í ár er dagskráin glæsileg, blanda af okkar efnilegasta tónlistarfólki og þekktum listamönnum. BLIND tónleikarnir hafa vakið mikla athygli enda einstakir tónleikar þar sem gestir upplifa viðburðinn með budnið fyrir augun og eru tónleikarnir hljóðblandaðir í surround og nei þetta er ekkert eins og að hlusta á tónlist með lokuð augun.  „Eins ótrúlega og það hljómar hef ég hvergi fundið sambærilega hugmynd á netinu eða annarsstaðar.“ Segir Jón Hilmar Kárason skipuleggjandi og hugmyndasmiður verkefnisins.  „Það sem listamenn eru alltaf að leita eftir er að gera list sem hefur áhrif á aðra, sem getur breytt einhverju.  Nokkrum mánuðum eftir BLIND tónleikana á Bræðslunni í fyrra þar sem Berglind Ósk sagnaþula var með okkur Guðjóni Birgi að gera tónleikana var hún stoppuð af ókunnugri konu í Kringlunni og spurð hvort hún hefði ekki verið með BLIND á Bræðslunni. Hún sagðist aldrei hafa upplifað aðrar eins tifinningar og muni aldrei gleyma tónleikunum. Mér þykri svo vænt um þessa litlu sögu“  Það kemur fyrir að fólk grætur, hlær, sofnar eða lendir í djúpt hugleiðsluástand á meðan tónleikunum stendur.  „Ég býð listamönnum aðstoð ef þarf og það er ekki bara sérstakt fyrir gesti að upplifa tónleikana.  Á einum tónleikunum síðasta sumar var ég að aðstoða  listamann að framkvæma tónleikana og var að lesa ljóð.  Þegar ég var að klára fyrsta versið fór ég að hágráta og náði ekki með neinu móti að klára lesturinn.“ Segir Jón Hilmar. „Þar sem allir voru með bundið fyrir augun tók held ég engin eftir því“  Í hvert skipti ræður sá listamaður sem auglýstur er ferðinni.  Hann getur tekið tónleikana á þann stað sem honum sýnist og möguleikarnir eru óendanlegir.  Þar sem áhorfandinn sér ekki greinir hann bara hljóð, finnur lykt og loft hreyfast.  Engir fordómar um að kaktus sé ekki hljóðfæri eða að það að strjúka borð sé ekki tónlist hverfa.  

BLIND tónleikar sumarsins í Tónlistarmiðstöð Austurlands Eskifirði kl 12 miðvikudaga í júlí:

6.júlí  - Raftónlistarverkefnið Laser life

13.júlí – Hin bráðefnilega Anya Shaddock

20.júlí – Prins Póló

27.júlí – Tónlistarkonan Greta Mjöll Samúelsdóttir

Súpa og brauð er innifalið í miðaverði og hægt er að kaupa miða á alla þessa viðburði á sérstöku tilboðsverði á www.jonkarason.is. Miðaverð við hurð er kr 2000.-

Einnig munu BLIND tónleikar verða á Eistnaflugi og á Frönskum dögum.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði og er unnið í samstarfi við Tónlistarmiðstöð Austurlands.

S:861-1894 – jonkarason@jonkarason.is