Dagana 1. - 5. nóvember verða dagar myrkurs haldnir á Austurlandi.
Dagar myrkurs 2017
01.11.2017 - 05.11.2017
Menningarveislan austfirska „Dagar myrkurs“ hefst 1. nóvember og stendur til 5. nóvember. Tónlist og matur verða í öndvegi og ýmis önnur myrkraverk. Dagskráin birtist jafn óðum hér.
Dagar myrkurs í Fjarðabyggð:
Kór Fáskrúðsfjarðarkirkju ásamt gestum verður með fjáröflunartónleika á Dögum myrkurs Fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 19.30-22:00 í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar. Aðgangseyrir 2000 krónur og allur ágóði rennur óskiptur til uppbyggingar á fjölskyldugarði á Fáskrúðsfirði. Sungin verða létt og skemmtileg kórlög.
dag.
Hosurnar, styrktarfélag Umdæmissjúkrahúss Austurlands / FSN, verða með sinn árlega markað á Dögum myrkurs í Safnahúsinu í Neskaupstað. Eins og venjulega verður mikið úrval af handverki og bakkelsi til sölu og allur ágóði fer til tækjakaupa sjúkrahúsinu.
Markaðurinn er opinn sem hér segir:
Fimmtudaginn 2. nóvember frá 17-21
Föstudaginn 3. nóvember frá kl 16-19
Laugardaginn 4. nóvember frá kl 13-16
Kaffihúsið Nesbær í Neskaupsta verður með handverks og myndlystasýningu - flosmyndir og málverk til sýnis. Fimmtudaginn 2. Nóvember verður svo Prjónakaffi í Nesbæ - Hrönn Grímsdóttir verður með fyrir lestur um jóga og leiðbeinir um hugleiðslu og jógaæfingar frá kl.20:15-21:00. 20% afsláttur af öllu garni þennan
Í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði verður Jazz sveifla að hætti gömlu meistarana fimmutdaginn 2. Nóvember kl. 20:00 þar sem gullaldarlög Jazzsögunnar verða í forgrunni. Aðgangseyrir 2000 kr. Stefanía Svavarsdóttir - söngur, ein flottasta jazz-söngkona landsins. Birgir Bragason - bassi, Birgir Þórisson - Píanó, Erik Qvick - trommur, Haukur Gröndal - saxafónn. Allir afburða hjóðfæraleikarar á sínu sviði.
Kjörbúðin Fáskrúðsfirði verður með ýmis tilboð í tilefni daga myrkurs.