Flóttafólk á Íslandi og stuðningur Rauða krossins

12.04.2018 - 17.04.2018

Klukkan 17:30

10.04.2018

Rauði krossinn býður íbúum Fjarðabyggðar á fræðslunámskeið um aðstæður flóttafólks og þann stuðning sem það fær á Íslandi.

Námskeiðið verður í tvennu lagi; fyrri hluti þann 12. apríl kl. 17.30-20.30 í húsnæði Austurbrúar/AFLs á Reyðarfirði, síðari hluti verður þann 17. apríl, kl. 17.30 á Norðfirði, í Beituskúrnum. Boðið verður upp á léttan kvöldverð í bæði skiptin.
Skoðuð verður saga fólks á flótta, réttindi og skyldur, aðstoð við að setjast að, hlutverk stuðningsfélaga á vegum Rauða krossins, menningarlegur bakgrunnur flóttafólksins o.fl. 
Þetta er sérstaklega hugsað fyrir þau sem eru/eða hafa hug á að gerast stuðningsfélagar flóttafólks í sveitarfélaginu en það eru einnig allir sjálfboðaliðar og aðrir íbúar velkomnir! 
Vinsamlega skráið ykkur hér: skraning.raudikrossinn.is

Hlökkum til að sjá ykkur!