Fræðslufyrirlestur í Nesskóla með Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur mánudaginn 27. nóvember kl. 20:00
Jafnréttismál eru forgangsmál - þögnin er aldrei hlutlaus!
27.11.2017
Klukkan 20:00 - 21:30
21.11.2017
Í kjölfar umræðu um kvenfyrirlitningu og kynferðislegrar áreitni unglinga í Nesskóla og á Kuldabola hafa foreldrafélög Nesskóla og VA fengið Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur til að kynjafræða foreldra og aðra sem koma að uppeldi og starfi með börnum og unglingum í bænum. Þetta er í fyrsta sinn í Neskaupstað sem að fræðsla af þessu tagi hefur boðist almenningi og því mikilvægt að grípa tækifærið. Líflegri og áhugaverðri kvöldstund lofað!
Fræðslan er styrkt af SÚN og er í boði Forvarnarteymis VA, FOVA og Foreldrafélags Nesskóla. Aðgangur er ókeypis.