Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði.
Jólakyrrð Fjarðadætra
18.12.2016
Klukkan 20:00
10.11.2016
Sönghópurinn Fjarðadætur er að góðu kunnur. Raddgæðin og samhljómurinn hefur hvarvetna vakið verðskuldaða athygli ásamt glæsilegri framkomu.
Fjarðadætur eru Berglind Ósk Guðgeirsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Jóhanna Seljan Þóroddsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir.
Þeim til halds og trausts verða Hinrik Þór Oliversson á trommur, Jón Hafliði Sigurjónsson á bassa og Þórður Sigurðarson á píanó.
Gestasöngvarar eru Hera Björk Þórhallsdóttir og Anya Shaddock.
Aðgangur í forsölu er kr. 2.000.
Forsala verður 9. - 15. desember frá kl. 10:00 til 12:00 í síma 851 1616.
Aðgangur við hurð er kr. 3.000.
Frítt fyrir grunnskólabörn.
Fjarðadætur (pdf)