Dagar myrkurs hjá leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði.
Leikskólinn Lyngholt
02.11.2016 - 04.11.2016
05.10.2016
Miðvikudaginn 2. nóvember verður svartur dagur í Lynholti. Allir mæta í svörtu og unnið verður með svarta litinn.
Fimmtudaginn 3. nóvember verður vasaljósadagur. Leikskólinn tekur á móti nemendum utan dyra um morguninn og allir leika sér með vasaljós.
Föstudaginn 4. nóvember verður vinadagur með Grunnskóla Reyðarfjarðar. Leik- og grunnskólanemendur hittast í leikskólagarðinum og syngja nokkur lög. Í boði verður heitt kakó og nýbakaðar kleinur.
Nánari upplýsingar veitir Lisa Lotta, leikskólastjóri í s. 474 1267 eða á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is.