Neistaflug í Neskaupstað

29.07.2016 - 31.07.2016

10.06.2016

Neistandi útihátíð fyrir alla fjölskylduna um verslunarmannahelgi í Neskaupstað.

Fjölskylduvæna útihátiðin Neistaflug verður í Neskaupstað dagana 30. júlí -2. ágúst. Margar skemmtilegar hefðir hafa skapast í kringum þessa frábæru fjölskylduhátíð sem fer nú fram 24. árið í röð.

Eins helsta sérstaða Neistaflugs er glæsileg dagskrá fyrir alla aldurshópa, alveg frá yngstu þegnum landsins og upp í (h)eldri borgara.

Tjaldmarkaður, varðeldur, skrúðganga, flugeldasýning og brunaslöngubolti á milli hverfa verður meðal annars á döfinni þá fjóra daga sem hátíðin stendur. Þá er frí skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna á útisviðinu föstudag, laugardag og sunnudag.