Tónleikar og ljóðlestur í Tónlistarmiðstöð Austurlands.
Sólveig Vaka og Eyþór Árnason
31.08.2017
Klukkan 20:00
29.06.2017
Feðginin Sólveig Vaka Eyþórsdóttir og Eyþór Árnason ferðast um landið með viðburð sem blandar saman tónum og tali. Sólveig Vaka, sem á síðasta ári hóf framhaldsnám í fiðluleik í Tónlistarháskólanum í Leipzig, mun leika bæði erlend og íslensk einleiksverk á fiðlu. Eyþór Árnason var nýverið tilnefndur til Maístjörnunnar fyrir bestu ljóðabók ársins, “Ég sef ekki í draumheldum náttfötum“, og mun flytja ljóð úr henni, sem og eldri bókum sínum.
Aðgangseyrir 2000 kr.