Söngleikjaspuni og sýning

17.10.2016 - 23.10.2016

05.10.2016

Námskeið í Tónlistarmiðstöð Austurlands í samstarfi við Improv Ísland. Sýning á sunnudeginum kl. 16:00.

Námskeiðið er ætlað áhugafólki sem langar að reyna sig á sönleikjasviðinu.

Kennsla fer fram í Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði, kl. 19:00-22:00 dagana 17. til 21. október.

Ákvörðun um fyrirkomulag á laugardeginum og sunnudeginum verður tekið með hliðsjón af framvindu námskeiðsins.

Sjálf sýningin verður svo á sunnudeginum 23. október, kl. 16:00.

Miðað er við að þátttakendur séu 20 ára og eldri og að fjöldi þeirra verði minnst 8 og mest 14 talsins.

Ekkert þátttökugjald er tekið. Skráning er á tonleikahus@tonleikahus.is.

Sjá viðburð á vef Tónlistarmiðstöðvarinnar: http://tonleikahus.is/