Støð í Stöð

30.06.2016 - 03.07.2016

10.06.2016

Fjölbreytt fjölskylduhátíð sem haldin er í ár í  tilefni 120 ára verslunarafmælis Stöðvarfjarðar og að 110 ár séu liðin frá því Stöðvarhreppur var stofnaður.

Støð í Stöð í er fjölskylduhátíð sem haldin verður á Stöðvarfirði í sumar, dagana 30. júní - 3. júlí. 

Hátíðin hefur marg upp á að bjóða og má meðal annars nefna hverfahátíðir, listasýningar, myndasýningu, fullt af lifandi tónlist, böll og skemmtiatriði og leiki fyrir börn svo eitthvað sé nefnt.

Kynntu þér dagskrá hátíðarinnar hér en þú getur líka fylgst með facebook síðu hátíðarinnar.