Samleikur og samstaða af líkama og sál hjá Þórarni Stefánssyni, píanóleikara og Petreu Óskarsdóttur, flautuleikara.
Tónleikar - Hið fullkomna samband
29.09.2016
Klukkan 20:00
16.09.2016
Tónleikarnir fara fram í Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði, fimmtudagskvöldið 29. september.
Hjónin Petrea og Þórarinn eru kennarar í Eyjafirði og virk í tónlistarlífi landsins.
Petrea er leiðandi flautuleikari Sinfoníuhljómsveitar Norðurlands og kemur fram á ýmsum tónleikum þess utan.
Þórarinn er einnig virkur þátttakandi í tónleikahaldi af ýmsu tagi og hefur gefið út bækur og geisladisk með íslenskri tónlist. Hann vinnur nú að heildarútgáfu á píanóverkum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og vann að því verkefni í Jensenshúsi á nýliðnu sumri.
Aðgangur er ókeypis.