Skíðasvæðið í Oddsskarði
Eitt besta skíðasvæði landsins
Skíðasvæði Fjarðabyggðar er í Oddsskarði og er ein af perlum sveitarfélagsins. Þar er skíðalyfta, sem hefst í 513 metra hæð. Þegar upp á topp er komið, í 840 metra hæð, blasir við ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörð.
Oddsskarð er með skemmtilegustu skíðavæðum á Íslandi og gengur einnig undir nafninu „Austfirsku Alparnir". Á svæðinu er barnalyfta og ágætur skíðaskáli með veitingaaðstöðu.
Skíðamiðstöðin Oddsskarði, SKO, annast daglegan rekstur skíðasvæðisins. Um hverja páska stendur skíðamiðstöðin fyrir Páskafjöri, útivistar og fjölskylduhátíð. Skíðafélag Fjarðabyggðar og Brettafélag Fjarðabyggðar hafa æfingaaðstöðu við miðstöðína.
Upplýsingar
Heimilisfang | við Norðfjarðarveg |
---|---|
Staður | 735 Eskifjörður |
Netfang | oddskard@oddsskard.is |
Sími | +354 476 1465/878 1474 |
Vefur | Sjá vefsíðu |