Eskifjörður
Tjaldsvæðið við Bleiksána, við innkeyrsluna í bæinn, er umvafið fallegri skógrækt. Stutt er í sundlaug, kaffihús og bensínstöð.
Tjaldsvæðið er í skógarreit við Bleiksána, rétt við innkeyrsluna í bæinn. Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn og leiksvæði fyrir börnin. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Eskifjarðar og er hún opin allt árið.
Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:
Salerni, kalt og heitt vatn, ruslagámar, rafmagn, sturta, sundlaug (200 m), heitir pottar (200 m), upplýsingamiðstöð (200 m), bekkir og borð, veitingahús (100 m), kaffihús (100 m), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (500 m), fjallasýn, gönguleiðir, leikvöllur, íþróttavöllur (100 m), veiði, golf (1,5 km), heilsugæsla (800 m).
Þjónusta tjaldsvæðisins 2022 er frá1. júní - 1. september
Verðskrá 2022:
Fullorðnir 1.500 ISK
Eldri borgarar og öryrkjar 1.000 ISK
Rafmagn 1.000 ISK
Frítt fyrir börn undir 14 ára aldri
Opinn eldur bannaður, hundar í bandi leyfðir.
Heimilt er að hafa hunda á tjaldsvæðum Fjarðabyggðar, svo framarlega sem þeir eru hafðir í ól. Lausaganga hunda er óheimil í Fjarðabyggð nema á skilgreindum hundasvæðum.
Upplýsingar
Heimilisfang | Strandgata |
---|---|
Staður | 735 Eskifjörður |
Sími | +354 7760127 |