Frá tjaldsvæðinu er fallegt útsýni yfir Norðfjörð.
Öll aðstaða er til fyrirmyndar.
Leiksvæði fyrir börnin.

Norðfjörður

Nýtt og vel útbúið tjaldsvæði fyrir ofan Neskaupstað

Tjaldsvæðið er á fallegum útsýnisstað við snjóflóðavarnargarðana í Drangagili, ofan við Víðimýri. Á svæðinu eru sturtur, snyrting, rafmagn, leiksvæði og strandblakvöllur. Ganga má upp á varnargarðana og njóta stórkostlegs útsýnis yfir bæinn, fjörðinn og fjöllin. Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn er í anddyri Sundlaugar Norðfjarðar og er hún opin allt árið.

Eftirfarandi þjónusta er í boði á tjaldsvæðinu:

Salerni, kalt og heitt vatn, upplýsingamiðstöð (600 m), ruslagámar, klóaklosun fyrir húsbíla, rafmagn, bekkir og borð, fjallasýn, leikvöllur, íþróttavöllur, sturta, sundlaug (600 m), heitir pottar (600 m), veitingahús (600 m), kaffihús (600 m), vínveitingar (600 m), dagvöruverslun (1 km), bensínstöð (1 km), gönguleiðir, veiði, hestaleiga (6 km), golf (6 km), heilsugæsla (300 m).

Landamerki er rekstraraðili tjaldsvæðisins. 

Þjónusta tjaldsvæðisins er frá 1. júní - 15. september

Verðskrá:

Fullorðnir 1.500 ISK

Eldri borgarar og öryrkjar 1.000 ISK

Rafmagn 1.000 ISK

Frítt fyrir börn undir 14 ára aldri

Opinn eldur bannaður, hundar í bandi leyfðir.

Heimilt er að hafa hunda á tjaldsvæðum Fjarðabyggðar, svo framarlega sem þeir eru hafðir í ól. Lausaganga hunda er óheimil í Fjarðabyggð nema á skilgreindum hundasvæðum.

Upplýsingar

Heimilisfang Víðimýri
Staður 740 Neskaupstaður
Sími +354 7760061