Skíðamiðstöðin í Oddsskarði

Austfirsku alparnir taka vel á móti þér

Oddsskarð eða Austfirsku alparnir, eins og skíðasvæðið milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er oft nefnt, er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins.  Í fjallinu er toglyfta í 513 metra hæð og þegar upp á topp er komið, í 840 metra hæð yfir sjávarmáli, blasir við ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörð.

Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu. Þá er skíðamiðstöðin með Stubbaskóla fyrir yngstu börnin.

Um páskana er haldið Páskafjör og er þá jafnan mikið um að vera í skarðinu. Þetta er frábær fjölskylduhátíð með margar skemmtilegar hefðir eins og sparifataskíðadag, páskaeggjaleit og minningarmót Gunnar Ólafssonar. Þá er brettafólki gert hátt undir höfði með haganlega gerðum brettabrautum og –pöllum.

Skíðalandið Austurland

Fyrir alla sem elska að skemmta sér í snjó

Skíðasvæðin tvö í Oddsskarði og Stafdal bjóða fjölbreyttar skíðaleiðir ásamt barnalyftum og -brekkum fyrir smáfólkið. Í Oddsskarði er auk þess Stubbaskóli fyrir þau allra yngstu og troðnar brautir fyrir gönguskíði um fjölsóttar helgar og hátíðir.

Skíðamiðstöð Austurlands í Oddsskarði er skammt frá Oddsskarðsgöngum sem liggja á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Um klukkustundar akstur er frá Egilsstöðum, en frá Reyðarfirði er um hálftíma akstur, rúmar 20 mínútur frá Neskaupstað og um 15 mínútur frá Eskifirði.

Skíðafélagið í Stafdal sér um samnefnt svæði sem er á Fjarðarheiði. Um 20 mínútna akstur er frá Egilsstöðum og 10 mínútur frá Seyðisfirði. Greið leið er á milli skíðasvæðanna um Fagradal, sem liggur á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar.

Ferðamönnum sem gista á Austurlandi stendur til boða helgarpassi fyrir skíðalandið sem gildir á bæði skíðasvæði. Hótel- og gistiaðilar veita nánari upplýsingar. 

TENGDAR SÍÐUR

Oddsskarð   
Stafdalur