Franski grafreiturinn

Skammt utan við byggðina í Fáskrúðsfirði

Rétt utan við þéttbýlið að norðanverðu er minnisvarði með nöfnum 49 franskra og belgískra sjómanna sem létu lífið á Íslandsmiðum. Á frönsku dögunum 2009 komu fulltrúar frá félagi sjómanna í Gravelines og afhentu nýja krossa á leiði frönsku sjómannana. 

Gravelines er gamall sjávarútvegsbær á norðurströnd Frakklands og vinabær Fáskrúðsfjarðar. Á bæjarhátíðinni Frönskum dögum eru lagðir tveir blómsveigar við minnismerki franska grafreitarins í minningu þeirra íslensku og frönsku sjómanna sem látist hafa til sjós.