Støð í Stöð í er fjölbreytt og skemmtileg fjölskylduhátíð sem haldin er á Stöðvafirði.
Stöðvafjörður

Stød í Stöð

Støð í Stöð í er fjölskylduhátíð sem haldin var á Stöðvarfirði í sumar, dagana 30. júní - 3. júlí. Hátíðin er haldin í tilefni 120 ára verslunarafmælis Stöðvarfjarðar og að 110 ár séu liðin frá því Stöðvarhreppur var stofnaður.

Hátíðin var fyrst haldin árið 1996, á 100 ára verzlunarafmæli Stöðvarfjarðar og síðast árið 2006 á 100 ára afmæli Stöðvarhrepps, og finnst okkur skipuleggjendum við hæfi að halda hana því núna aftur, 10 árum síðar.

Hátíðin hefur margt upp á að bjóða og má meðal annars nefna hverfahátíðir, listasýningar, myndasýningu, fullt af lifandi tónlist, böll og skemmtiatriði og leiki fyrir börn svo eitthvað sé nefnt.