Bryggjuhátíðin Reyðarfirði

Fjölbreytt og skemmtileg bæjarhátíð

Bryggjuhátíðin er haldin á Reyðafirði þann 2. júlí í boði íbúasamtöka Reyðarfjarðar.
 
Þetta er frábær fjölskylduskemmtun sem enginn vill missa af. Hátíðin byrjar klukkan 12 með handverksmarkaði og myndlistarsýningyu á Kaffi Kósý en fyrir utan verður skottamarkaður. Á sama tíma verður boðið upp á kajak á andapollinu, endurgjaldslaust. Klukkan 12 hefst síðan glæsileg skemmtidagskrá á túninu fyrir neðan N1 en þar koma meðal annas fram Meistarar Dauðans ásamt 6 söngdívum, Hrafna og Jón Hilmar og margt, margt fleira. 
Íbúasamtökin hvetja íbúa til að taka þátt í hverfagrilli og má hér til hliðar nálagst hverfaskiptinguna. Hverfin eru nefnd eftir gömlum bryggjuheitum á Reyðarfirði.

Íbúasamtökin mælast einnig til þess að íbúar geri snyrtilegt hjá sér, flaggi í tilefni dagsins og skreyti í anda stríðsáranna, en hernámsdagurinn á Reyðarfirði fer fram næsta dag.
 
Kynntu þér dagskrána og gerðu þér glaðan dag á Reyðarfirði.