Þilfar á franskri skútu með Haf minninganna í baksýn.
Vistin gat verið erfið um borð í frönsku skútunum.
Frönsk nunna situr yfir við sjúkrabeð á Franska spítalanum.
Beðið á biðstofu læknisins í Læknishúsinu.

Frakkar á Íslandsmiðum

Fáskrúðsfirði

Frakkar á Íslandsmiðum er nýjasta perlan á safnastreng Fjarðabyggðar. Safnið er til húsa í tveimur reisulegum byggingum sem Frakkar reistu upp úr aldamótunum 1900 eða Læknishúsinu og Franska spítalanum á Fáskrúðsfirði.  Meginsýning safnsins er þó í hvorugu húsanna, heldur  í undirgöngum sem tengja þau saman.

Frakkar á Íslandsmiðum er án efa eitt athyglisverðasta safn landsins. Ekki aðeins fyrir hönnun þess og nálgun við viðfangsefnið, heldur einnig vegna andrúmsloftsins sem tekist hefur að skapa. Lifandi nærmynd er brugðið upp af lífi sjómanna um borð í frönsku skútunum sem sóttu Íslandsmið og skynjar áhorfandinn glöggt aðstæður þeirra og daglegt líf. Þá veitir safnið einnig glögga innsýn í starfsemi Franska spítalans og merka starfsemi hans upp úr aldamótunum 1900.

Endurgerð Minjaverndar á Frönsku húsunum á Fáskrúðsfirði lauk sumarið 2014. Húsin eru alls fimm og eru auk Læknishússins og Franska spítalans, Sjúkraskýlið, Litla kapellan og Líkhúsið.  Endurreisnarsaga húsanna er með merkari framkvæmdum Minjaverndar og sú viðamesta utan höfuðborgarsvæðisins.

Frönsku húsin gegna á ný mikilvægu hlutverki fyrir bæjarlíf Fáskrúðsfjarðar, en nú sem Fosshótel Austfirðir, sælkerastaðurinn l'Abri og safnahús Fransmanna á Íslandi. Litla kapellan hlaut blessun 26. júlí 2014 og er eina byggingin sem heldur upprunalegu hlutverki sínu. 

Safnið er opið alla daga kl. 10:00-18:00 (15.maí - 30.september) eða eftir samkomulagi á öðrum árstímum.

Sjá opnunartíma safna í Fjarðabyggð

 

Upplýsingar

Heimilisfang Hafnargötu 12
Staður 750 Fáskrúðsfirði
Netfang sofn@fjardabyggd.is
Sími +354 475 1170
Vefur Sjá vefsíðu