Eldsmiðjan er nákvæm eftirlíking af smiðju sem faðir Jósafats átti
Verkfæri og verktækni fyrri tíma
Blakkir af öllum stærðum og gerðum

Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar

Safnahúsinu í Neskaupstað

Safnið var stofnað af vélstjóranum og athafnamanninum Jósafat Hinrikssyni sem ættaður var frá Neskaupstað. Safnið byggir á munum sem tilheyra sjávarútvegi, járn- og eldsmíði, bátasmíði og gömlum atvinnuháttum. Einnig geymir safnið eftirlíkingu af eldsmiðju Hinriks Hjaltasonar, föður Jósafats, þar sem Jósafat lærði og hóf starfsferil sinn.

Safnið er áhugaverð heimild um framkvæmdir og smíðatækni fyrri ára. Það var áður til húsa í Súðavogi 4 í Reykjavík, þar sem Vélaverkstæði J. Hinrikssonar var til húsa. Árið 2000 afhentu erfingjar Jósafats Fjarðabyggð safnið til varðveislu í Neskaupstað. 

Safnið er eitt af þremur söfnum Safnahússins í Neskaupstað og er á 2. hæð hússins.

Safnið er opið alla daga frá 13:00 - 17:00  (júní-ágúst) eða eftir samkomulagi á öðrum árstímum.

Sjá opnunartíma safna í Fjarðabyggð

Upplýsingar

Heimilisfang Egilsbraut 2
Staður 740 Neskaupstað
Netfang sofn@fjardabyggd.is
Sími +354 470 9000