Sundlaug Fáskrúðsfjarðar
Hlýleg innilaug með heitum útipotti
Sundlaug Fáskrúðsfjarðar er 12,5 metra innisundlaug með heitum útipotti.
Sundlaugin var tekin í notkun árið 1948 og veitir byggingarstíllinn sundlauginni einstaklega hlýlegt og notalegt yfirbragð.
Sundlaugarhúsið er tvískipt og var austurhluti þess leikfimisalur og samkomuhús staðarins á árum áður. Félag eldri borgara á Fáskrúðsfirði hefur nú þennan hluta til afnota fyrir félagsstarf sitt.
Upplýsingar
Heimilisfang | Skólavegi 39-41 |
---|---|
Staður | 750 Fáskrúðsfjörður |
Netfang | sund.fask@fjardabyggd.is |
Sími | +354 475 9070 |