mobile navigation trigger mobile search trigger

Á fætur í Fjarðabyggð 2022 - Laugardagurinn 24. júní

Kl. 10:00.

1.Göngu og bátsferð á Barðsneshorn   

Mæting við Safnahúsið (rautt hús) í Miðbæ Neskaupstaðar þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.

  1. Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingervinga í fjörunni leitað. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes. U.þ.b15 km.

             Leiðsögumaður Sævar Guðjónsson 6986980

  1. Gengið frá Barðsnesbænum og út í Mónesskarð. Þaðan að Rauðubjörgum og inn að Barðsnesi aftur. Rólegheita ganga.

Fararstjóri Sigurborg Hákonardóttir 8931583

  1. Gengið frá Barðsnesi upp í Síðuskarð og þaðan á fjallið Sandfell. Ef tími er til verður

gengið  út  Brúnina út að Skollaskarði. Glæsilegt útsýni er á þessari leið.

             Fararstjóri Kristinn Þorsteinsson 8647694

Báturinn tekin til baka um kl. 18:00.

Verð kr. 6.000.

3.000kr.fyrir 16 ára og yngri. (bátsferð innifalin í verðinu og verða börn að vera í fylgd með fullorðnum).

Nauðsynlegt er að skrá sig í þessa ferðir hjá Sævari Guðjónssyni, 698 6980 eða mjoeyri@mjoeyri.is, fyrir kl. 12.00 föstudaginn 23. júní.

 

Kl. 21:00

Kvöldvaka í Randulffs-sjóhúsi Eskifirði

Lifandi tónlist.
Frítt inn í boði Laxa.