mobile navigation trigger mobile search trigger

Laugardagur 25. Júní

Kl. 10:00 Oddsdalur- Víkurheiði. Ca.15 km  

Mæting á Mjóeyri við Eskifjörð kl 9:30 þar sem sameinast er í bíla.

Einnig er hægt að mæta kl 10:00 á bílastæðið við upphaf gönguleiðarinnar um Op á Oddsdal Norðfjarðar megin á gamla Oddsskarðsveginum.

Gengið frá Oddsdal um Op með fram Glámsaugnatindi og Grákolli um Jónsskarð og Miðflóafjall á Náttmálahnjúk og þaðan niður á Víkurheiði.

Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson, 698 6980.

Verð kr.3.000

Kl. 13:00 Fjölskylduganga um fólkvanginn/friðlandið á Hólmanesi

Mæting á útsýnis staðnum upp á Hólmahálsi.

Gengið niður að Urðarskarði og þaðan hringinn út fyrir Hólmaborg, Sauðahellir, Ögmundargat, Gránubás og fl. skoðað á leiðinni.

Þeir sem treysta sér ganga á borgina.

Fararstjóri Landvörðurinn á svæðinu.

Verð kr. 1.000 fyrir fullorðna.

Kl. 20:00 Lokakvöldvaka á Mjóeyri

Útisvið, lifandi tónlist, varðeldur, veitingar og veittar viðurkenningar Gönguvikunnar og fleira.

Aðgangur ókeypis í boði Gönguvikunnar og Eskju.

 

Kl. 22.00 – 01.00 Sjóhúspartí á Randulffs-sjóhúsi.  

18 ára aldurstakmark.

Frítt inn í boði Randulffs-sjóhúss