Mánudagur 20.júní
Kl. 10:00 Hái-Járnskari. 619m (eitt af fjöllunum fimm í gönguvikunni)
Mæting við bílastæðið ofan við Skuggahlíðarbjarg.
Gengið út með Skuggahlíðarbjargi og upp að Vegahnjúk. Þaðan haldið Hellisfjarðar megin út á fjallið.
Svipuð leið tekin til baka.
Fararstjóri. Kristinn Þorsteinsson, 864 7694.
Verð kr. 3.000.
Kl. 18.00 Ganga upp að Hólatjörnum í Fannardal.(göngugarpaferð)
Mæting innan við Naumamel í Fannardal.
Gengið upp með tjörnunum og lífið kringum þær skoðað.
Farið niður með Tandrastaðaá.
Fararstjóri Þórður Júlíusson. 8918036
Verð kr. 1.000.
Kl. 20.00 Kvöldvaka innan við Naumamel í Fannardal.
Lifandi tónlist varðeldur og veitingar í boði Síldarvinnslunnar.