Sunnudagur 24. júní
Kl. 10:00 Gönguferð frá Gilsá í Fáskrúðsfirði að Berunesi í Reyðarfirði
Mæting kl 9:30 á bílastæðinu við Selá utan við Berunesbæinn við sunnanverðan Reyðarfjörð þar sem ferðin endar.
Sameinast í bíla frá bílastæðinu við Berunes og ekið að Gilsá í Fáskrúðsfirði þar sem gangangan byrjar.
Gengið upp með Gilsá meðfram Örnólfsfjalli í Örnólfsskarð. Þaðan svo gengið yfir Grákoll að Kerlingu við Kerlingarfjall. Að því búnu um Skildingaskarð og út á Hafranesfell og niður að Berunesi.
Fararstjóri Kristinn Þorsteinsson 8647694
Verð krónur 3.000.-
Kl.16.00 Gönguferð frá Grímu að Eyri í sunnanverðum Reyðarfirði.
Mæting við afleggjarann að Grímuvita.
Gengið frá vitanum með ströndinni að eyðibýlinu Eyri. Vitinn, vogar og víkur skoðaðar á leiðinni.
Fararstjóri Stefán B. Ingvarsson, 8991137
Verð kr. 1.000
Kl. 18.00 Kvöldvaka við Eyri í Reyðarfirði.
Lifandi tónlist og veitingar í boði Egersund Ísland