Þriðjudagur 27.júní
Kl. 10:00 Goðaborg í Fáskrúðsfirði 1030m (eitt af fjöllunum fimm í gönguvikunni).
Mæting á bílastæðinu við Dali í Fáskrúðsfirði sunnan við Fáskrúðsfjarðargöng.
Gengið frá bílastæðinu að Hrossadalsá, upp með henni og upp í Vatnsdal þaðan sem gengið er á fjallið. Flott útsýni yfir Fáskrúðsfjörð og Reyðarfjörð.
Fararstjóri. Kristinn Þorsteinsson, 864 7694.
Verð kr. 3.000.
Kl. 18.00 Fjölskylduganga upp með Eyrará í Fáskrúðsfirði. (göngugarpaferð)
Mæting við bæinn Eyri við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð.
Gengið upp með Eyraránni og m.a. gömul heimarafstöð í ánni skoðuð.
Fararstjóri Eyþór Friðbergsson, 8652327
Verð krónur 1.000
Kl. 20:00 Kvöldvaka í Norðurljósahúsinu á Fáskrúðsfirði.
Lifandi tónlist og veitingar.