Þriðjudagur 21.júní
Kl. 10:00 Hallberutindur 1118 (eitt af fjöllunum fimm í gönguvikunni).
Mæting á bílastæðinu við Dali í Fáskrúðsfirði sunnan við Fáskrúðsfjarðargöng.
Gengið upp Innri Þverárdal og þaðan á tindinn. Fagurt útsýni yfir Fáskrúðsfjörð og Reyðarfjörð..
Fararstjóri. Kristinn Þorsteinsson, 864 7694.
Verð kr. 3.000.
Kl. 18.00 Fjölskylduganga upp með Gilsá í Fáskrúðsfirði.(göngugarpaferð)
Mæting á bílastæðið utan við Gilsá við norðanverðan Fáskrúðsfjörð.
Gengið upp með Gilsá og bakvið foss í ánni.
Fararstjóri Eyþór Friðbergsson 8652327
Verð krónur 1.000
Kl. 20:00 Kvöldvaka á grunnskólalóðinni á Fáskrúðsfirði.
Lifandi tónlist og veitingar.
Kvöldvakan er í umsjá Gönguklúbbs Suðurfjarða og í boði Loðnuvinnslunnar.