Á fætur í Fjarðabyggð
Göngur, náttúruskólinn og fjöllin fimm
Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð er með stærstu útivistarviðburðum ársins. Árið 2022 fer hún fram dagana 18. - 25. júní. Í boði eru fjöldi viðburða þá viku, bæði gönguferðir og skemmtanir, en vikan er ekki síður skilgreind sem gleðivika.
Áhersla er lögð á fjölbreyttar gönguleiðir við allra hæfi, s.s. fjölskyldugöngur, sögugöngur og göngur fyrir alvöru fjallagarpa og á kvöldin er brugðið á leik með kvöldvökum og sjóræningjapartíum.
Göngu- og gleðivikan fer fram síðustu vikuna í júní eða frá 24.júní-1. júlí 2017. Vikan stendur frá laugardegi til laugardags og fyllir því átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum og frábærri útivist. Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.
Gönguleiðarkorti og dagskrá verður dreift í hús á næstu dögum en útgefnar upplýsingar má nálgast á tenglum hér til hliðar.
Kynntu þér gönguvikufjöllin fimm, Fjallagarpa gönguvikunnar og margt, margt fleira.