Hótel Staðarborg er umvafið sveitasælu Breiðdals.
Hótelið býður upp á ýmsar tegundir herbergja auk svefnpokapláss.
Gestir hafa aðgang að heitum potti og saunu.

Hótel Staðarborg

Njóttu sveitasælunnar í Breiðdal

Hótel Staðarborg er glæsilegt hótel í Breiðdal, aðeins 7 km. frá Breiðdalsvík. Hér er um að ræða endurnýjað skólahúsnæði er rúmar 54 gesti í 30 rúmgóðum herbergjum með sér baði og sjónvarpi, auk svefnpokaplássa. Hótelið er við þjóðveg nr. 95 í 625 km fjarlægð frá Reykjavík og um 100 km frá Seyðisfirði, sem gerir hótelið að ákjósanlegum áningarstað fyrir þá sem ferðast með bílferjunni Norrænu. Afþreying er fjölbreytt á svæðinu og við allra hæfi í fögru umhverfi.

Hótel Staðarborg var opnað sumarið 2000.
Í veitingasal er framreiddur morgunverður, hádegisverður og kvöldverður auk þess sem hægt er að fá kaffi og meðlæti allan daginn.
Á lóðinni eru tjaldstæði og heitur pottur gestum til afnota.

Upplýsingar

Heimilisfang Staðarborg
Staður 761 Breiðdalur
Netfang stadarborg@stadarborg.is
Sími +354 475 6760