Allra veðra von í Fjarðabyggð - Sirkussýning í Neskaupstað

31.07.2021

Klukkan 18:00

06.07.2021

Listahópurinn Hringleikur verður á ferðinni í Neskaupstað með sýninguna "Allra veðra von" þann 31. júlí kl. 18 við íþróttahúsið. Akróbatík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar myndir og loftfimleikar flétta saman sögur af mönnum og veðri.

Hópurinn sýndi verkið á Fáskrúðsfirði sem verk í vinnslu síðasta haust, og það gleður okkur að snúa nú aftur með fullunna sýningu!
Við hvetjum alla til að bóka fyrirfram, enda gerir það okkur kleyft að upplýsa miðahafa ef aðstæður krefjast þess.
Miðasala og nánari upplýsingar:
https://tix.is/is/event/11407/allra-ve-ra-von/
Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur áhorfanda á öllum aldri, auk þess að hljóta Grímuverðlaunin 2021 fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins!