Allra veðra von í Fjarðabyggð - Sirkussýning á Fáskrúðsfirði

01.08.2021

Klukkan 18:00

06.07.2021

Listahópurinn Hringleikur verður á ferðinni á Fáskrúðsfirði með sýninguna "Allra veðra von" þann 1. ágúst kl. 18 á Búðagrund. Akróbatík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar myndir og loftfimleikar flétta saman sögur af mönnum og veðri.

Hópurinn sýndi verkið á Fáskrúðsfirði sem verk í vinnslu síðasta haust, og það gleður okkur að snúa nú aftur með fullunna sýningu!
Við hvetjum alla til að bóka fyrirfram, enda gerir það okkur kleyft að upplýsa miðahafa ef aðstæður krefjast þess.
Miðasala og nánari upplýsingar:
https://tix.is/is/event/11407/allra-ve-ra-von/
Sýningin hefur fengið frábærar viðtökur áhorfanda á öllum aldri, auk þess að hljóta Grímuverðlaunin 2021 fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins!