Gönguvikan

22.06.2019 - 29.06.2019

03.06.2019

Göngu- og gleðivikan "Á fætur í Fjarðabyggð" fer fram síðustu vikuna í júní. Vikan stendur frá laugardegi til laugardags og fyllir því átta heila daga af fjölbreyttum viðburðum og frábærri útivist.

Innan Gönguvikunnar eru fjölskyldugöngur, sögugöngur, krefjandi áskoranir fyrir alvöru göngugarpa og allt þar á milli. Fyrir allra yngstu göngugarpana býðst náttúru- og leikjanámskeið. Að göngudegi loknum tekur gleðin völd með kvöldvökum, tónlist, leiklist og sjóhúsagleði.

Fjöllin fimm eru skemmtileg áskorun fyrir alla þátttakendur. Þeir sem klífa þau öll fá heiðursnafnbótina "Fjallagarpur gönguvikunnar". Fyrir 15 ára dugar að klífa þrjú fjöll til að landa þessum eftirsóknarverða titli.

Þá er gönguvikan með náttúruskóla fyrir allra yngstu þátttakendurna og hafa mömmur og pabbar því gott tækifæri til að taka þátt í göngum sem henta síður litlum fótum.

Þessi fjölskylduvæna gleði- og skemmtivika er einn stærsti útvistarviðburður ársins, með úrvals gönguferðir og afþreyingu við allra hæfi. Farðu á fætur með Fjarðabyggð og taktu þátt í frábærri útvistarskemmtun. 

Skipuleggjendur eru Ferðafélag Fjarðamanna í samstarfi við Ferðaþjónustuna Mjóeyri.