Ljósmyndasýningin "Kaupmaðurinn á horninu" - Opnun sýningarinnar

Klukkan 14:00 - 17:00

08.06.2021

Ljósmyndasýningin "Kaupmaðurinn á horninu" eftir Sigríði Marrow verður opnuð laugardaginn 19. júní í Þórsmörk í Neskaupstað. Opnunun stendur frá kl. 14 til 17 og eru allir velkomnir. Á sýningunni er að finna skemmtilegar og fallegar ljósmyndir af kaupmönnum hverfisverslana og bæja á landsbyggðinni en m.a. er að finna myndir úr Kaupfjelaginu Breiðdalsvík og af Nesbæ.

Um sýninguna:

Sigríður Marrow "Kaupmaðurinn á horninu"

Á blómatíma kaupmannsins á horninu, um miðja síðustu öld, voru litlar verslanir á nánast hverju einasta götuhorni. Þar hittist fólk til að spjalla og fá fréttir og þjónustan var mun persónulegri en við þekkjum í stórmörkuðum nútímans. Í litlum bæjarfélögum eru verslanir oft eini samkomustaður bæjarbúa, vettvangur til að ræða allt frá pólitík til tilfinningamála. Margir kaupmenn bjóða upp á heimsendingu, geyma lykla fyrir fólk, sinna hlutverki sálfræðings, hjálpa krökkum sem eru læstir úti og eru þar með ákveðinn öryggisventill samfélagsins.

Sigríður byrjaði á verkefninu árið 2016, hún ferðaðist um landið og heimsótti 34 verslanir. Hún gaf sér góðan tíma til að kynnast, taka viðtöl og ljósmynda búðareigendur og viðskiptavini í því skyni að ná raunsannri mynd af umhverfinu og einstaklingunum. Frá árinu 2016 hafa að minnsta kosti fimm þessara kaupmanna hætt rekstri, enda erfitt fyrir einyrkja að keppa við verslunarkeðjur í verði og vöruúrvali.

Blómatími kaupmannsins á horninu er liðinn, eftir standa örfáir einyrkjar sem með þrautseigju viðhalda þeim magnaða anda sem hverfisverslanir búa yfir. Verkefnið fjallar um þennan hverfandi menningarheim. Ljósmyndamiðillinn er notaður til þess að varpa ljósi á þann hlýja og mannlega andblæ sem einkenna þessar verslanir og eigendur þeirra.

Sigríður Marrow er með B.A. gráðu í fjölmiðlafræði og M.A. gráðu í menningarmiðlun með áherslu á ljósmyndun. Hún er með kennsluréttindi og hefur undanfarið unnið við kennslu og ljósmyndun.