Sigmar Matthíasson ásamt hljómsveit : Metaphor

18.09.2020

Klukkan 20:00

01.09.2020

Tónleikar í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði, föstudaginn 18.september. Þar mun Sigmar Þór Matthíasson ásamt hljómsveit spila efni af væntanlegri plötu. Hér er um einstakt tækifæri að ræða þar sem heyra má nýja óútgefna tónlist í stöðugri mótun

Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína fyrstu sóló plötu, Áróra, í september 2018 en hún hlaut tvennar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki Djass- og blústónlistar. Nú er að hefjast undirbúningur fyrir aðra plötu, sem ber vinnuheitið METAPHOR, og er áætluð útgáfa í byrjun árs 2021. Um er að ræða nýtt frumsamið efni þar sem áhrif frá austrænni þjóðlagatónlist og annarri heimstónlist blandast við nútímajazz.

ónleikar sem allir unnendur góðrar tónlistar mega ekki missa af enda er hér valinn maður í hverju rúmi en hljómsveitina skipa auk Sigmars á kontrabassa, þeir Haukur Gröndal á klarinett og saxófón, Ásgeir Ásgeirsson á oud og önnur strengjahljóðfæri, Ingi Bjarni Skúlason á píanó og Matthías Hemstock á trommur.
Hér má heyra tóndæmi:
https://youtu.be/RfFDMD4H1Ao
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Miðaverð: 2500 kr. og eru miðar seldir við innganginn. Tekið er á móti kortum og reiðufé.
Vegna Covid-19 geta aðeins 100 gestir sótt viðburðinn og gætt verður að tveggja metra reglu.
FLYTJENDUR:
Sigmar Þór Matthíasson: kontrabassi
Haukur Gröndal: klarinett & saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson: oud & önnur strengjahljóðfæri
Ingi Bjarni Skúlason: píanó
Matthías Hemstock: trommur
Tónleikarnir eru hluti af haustdagskrá Tónlistarmiðstöðvarinnar. 
Sýna minna