Fjarðabyggð heldur 17. júní hátíðlegan í ár í samstarfi við Þrótt Neskaupstað. Glæsileg dagskrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna og ættu allir að getað fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þjóðhátíð í Fjarðabyggð 2019
17.06.2019
Klukkan 13:30
Glæsileg dagskrá á íþróttavellinum frá 13:30 - 16:00
13:30 - Skrúðganga heldur af stað frá bílaplaninu við VA. Gengið verður sem leið liggur á íþróttavöllinn í Neskaupstað þar sem hátíðardagskrá hefst.
- Ávarp bæjarstjóra
- Ávarp fjallkonunnar
- Lifandi tónlist
- Hoppukastalar
- Sprell, fjör og leikir
- ... og margt fleira
Eins og venjulega verður boðið verður upp á fríar sætaferðir úr öllum byggðakjörnum Fjarðabyggðar á hátíðahöldin.
Frá Breiðdalsvík að hátíðarsvæðinu í Neskaupstað
Hótel Bláfell - Breiðdalsvík 11:15
Brekkan - Stöðvarfirði 11:38
Skrúður – Fáskrúðsfirði 12:00
Kirkjugarðurinn Fáskrúðsfirði 12:03
Orkuskálinn Reyðarfirði 12:25
Molinn – Reyðarfirði 12:30
Austurvegur/Barkurinn Reyðarfirði 12:33
Valhöll – Eskifirði 12:50
Shell – Eskifirði 12:53
Sundlaug Eskifjarðar 12:56
Neskaupstaður – VA 13:25
Brottfaratími frá hátíðarsvæðinu í Neskaupstað er kl. 16:20. Ekið er sömu leið til baka með viðkomu á sömu stoppistöðvum.