Tónaflug 2021 er tónleikaröð í Neskaupstað sumarið 2021. Tónaflug er samstarfsverkefni SÚN, Menningarstofu Fjarðabyggðar og Beituskúrsins sumarið 2021.
Lagt er upp með að bjóða fjölbreytta og skemmtilega tónleikadagskrá í Neskaupstað í sumar. Tónleikar verða haldnir í Egilsbúð og smærri tónleikaviðburðir og plötusnúðar mæta í Beituskúrinn sem iðar af lífi og fjöri öll kvöld.
Þeir sem koma að verkefninu vonast til þess að sjá sem flesta mæta, lyfta sér upp og fara á flug saman í Neskaupstað.
Dagskrá Tónaflugs 2021:
Krummi í Beituskúrnum - 13. júní (frítt inn)
JÓIPÉ x KRÓLI (ásamt hljómsveit) í Egilsbúð – 29. júní (miðasala á Tix)
DJ Flugvél og Geimskip í Beituskúrnum – 1. júlí (frítt inn)
Ham í Egilssbúð – 3. júlí (miðasala á Tix)
DJ Andreu Jóns í Beituskúrnum - 9. og 10. júlí
DJ Doddi litli með 80s og 90s stuð í Beituskúrnum – 16. júlí
Tónatitringur (eins og í gamla daga!) í Egilsbúð – Frestað
Queernes ball með Páli Óskari í Egilsbúð – Frestað
Dúndurfréttir í Egilsbúð – 28. ágúst
Miðasala á Dúndurfréttir verður auglýst síðar.