Tónleikar með Skólakór Kársness

12.06.2021

Klukkan 14:00

08.06.2021

Laugardaginn 12. júní kl. 14:00 kemur Skólakór Kársness við í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði og býður upp á fallega söngdagskrá. Á efnisskránni eru fjölbreytt og skemmtileg lög úr ýmsum áttum, allt frá vel völdum þjóðlögum yfir í Abba slagara.

Skólakór Kársness var stofnaður árið 1976 og hefur frá upphafi spilað stóran part í skólastarfi Kársnesskóla. Stjórnandi kórsins til 40 ára var Þórunn Björnsdóttir en árið 2016 tók Álfheiður Björgvinsdóttir við keflinu. Allir nemendur Kársnesskóla koma að kórstarfinu á sínum námsferli og eru yfir 300 börn í kór á hverju ári. Sönghefðin er rík og Kársnesskóli „syngjandi skóli“. Kórsöngvarar Skólakórs Kársness eru nemendur á unglingastigi Kársnesskóla.
Kórinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum í gegnum tíðina, allt frá skólasamkomum til stærri verkefna með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Kórinn hefur ferðast víða og tekið þátt í kóramótum og menningarhátíðum hérlendis og erlendis. Í ár er komið að því að kynnast Austurlandi og syngja fyrir fólk í Fjarðabyggð og ríkir mikil spenna fyrir komunni austur.
Tónleikarnir hefjast klukkan 14.00 og aðgangur er ókeypis.