Á fætur í Fjarðabyggð 2022 - Laugardagurinn 18. júní
10:00 Göngu og bátsferð á Barðsneshorn
Mæting við Safnahúsið (rautt hús) í Miðbæ Neskaupstaðar þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.
- Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingervinga í fjörunni leitað. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes.ca.15 km.
Leiðsögumaður Sævar Guðjónsson 6986980
- Gengið frá Barðsnesbænum og út í Mónesskarð. Þaðan að Rauðubjörgum og inn að Barðsnesi aftur. Rólegheita ganga.
Fararstjóri Sigurborg Hákonardóttir 8931583
- Gengið frá Barðsnesi upp í Síðuskarð og þaðan á fjallið Sandfell. Ef tími er til verður
gengið út Brúnina út að Skollaskarði. Glæsilegt útsýni er á þessari leið.
Fararstjóri Kristinn Þorsteinsson 8647694
Báturinn tekin til baka um kl. 18:00.
Verð kr. 6.000.
3.000kr. fyrir 16 ára og yngri. (bátsferð innifalin í verðinu og verða börn að vera í fylgd með fullorðnum).
Nauðsynlegt er að skrá sig í þessa ferðir hjá Sævari Guðjónssyni, 698 6980 eða mjoeyri@mjoeyri.is, fyrir kl. 12.00 föstudaginn 17. júní.
Kl. 21:00 Kvöldvaka í Randulffs-sjóhúsi Eskifirði
Söngskemmtun með söng og leikkonunni Þórunni Clausen og Andra Bergmann.
Frítt inn í boði Gönguvikunnar.