Laugardagur 1. júlí
Kl. 10:00 Víkurheiði- Vöðlavík. U.þ.b 15 km
Mæting á Mjóeyri við Eskifjörð kl 9:30 þar sem sameinast er í bíla.
Gengið frá Víkurheiði og út í Sléttuskarð. Þaðan meðfram Álffjalli og Hestshaus að Svartafjalli. Hægt er að ganga út á fjallið þaðan sem er glæsilegt útsýni yfir Vöðlavík. Áfram er gengið meðfram Snæfugli og yfir Sauðatind að Sauðavöllum. Að lokum er gengið að Kirkjubóli í Vöðlavík þar sem bílar sækja göngugarpa.
Léttar veitingar að Karlstöðum, skála Ferðafélags fjarðamanna, í Vöðlavík í lok ferðar.
Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson, 698 6980.
Verð kr.3.000
kl 13:00 Fjölskylduganga frá Kirkjubóli í Vöðlavík og út á Krossanes.
Mæting við eyðibýlið Kirkjuból í Vöðlavík (4x4)
Gengið frá Kirkjubóli að Kirkjubólshöfn og um Kirkjubólsskriður út að bæjarrústunum á Krossanesi og svo sömu leið til baka.
Léttar veitingar að Karlstöðum, skála Ferðafélags fjarðamanna, í Vöðlavík í lok ferðar í boði Ferðafélags Fjarðamanna..
Fararstjóri Elías Jónsson, 8448570.
Verð kr. 1.000
Kl. 20:00 Lokakvöldvaka á Mjóeyri
Útisvið, lifandi tónlist, varðeldur, veitingar og veittar viðurkenningar Gönguvikunnar og Náttúruskólans.
Aðgangur ókeypis í boði Eskju.
Kl. 22.00 – 01.00 Sjóhúspartí á Randulffs-sjóhúsi.
18 ára aldurstakmark.
Frítt inn í boði Randulffs-sjóhúss.