Golf
Þrír frábærir golfvellir
GRÆNANESVÖLLUR Á NORÐFIRÐI
Golfvöllur Golfklúbbs Norðfjarðar, Grænanesvöllur, er inn af botni fjarðarins. Skemmtilegur og vel hirtur völlur í fallegu umhverfi. Ekið er að vellinum eftir afleggjara til móts við býlið Miðbæ. Sími í golfskála 477 1165. Nánari upplýsingar um gjaldskrá má nálgast á Facebooksíðu klúbbsins.
- Byggingarár 1965
- Holur 9
- Par 70
BYGGÐARHOLTSVÖLLUR Á ESKIFIRÐI
Byggðarholtsvöllur, er sunnan við Eskifjarðará, innan byggðarinnar. Völlurinn er að sjálfsögðu opinn allt sumarið og eins lengi og tíð leyfir á haustin. Allar upplýsingar eru veittar í golfskála félagsins.
- Byggingarár 1976
- Holur 9
- Par 70
GOLFVÖLLURINN KOLLUR Á REYÐARFIRÐI
Golfvöllur Golfklúbbs Fjarðabyggðar er í hlíðinni rétt innan við bæinn á Reyðarfirði í fallegu umhverfi og þægilegur yfirferðar. Golfvöllurinn er nýr og er enn í uppbyggingu. Við Golfskálann er púttsvæði.
- Byggingarár 2009
- Holur 9
- Par 70