Kría
Veitingastaður og kaffihús Eskifirði
KRÍA veitingasala er til húsa í Shellskálanum Eskifirði. Boðið upp á girnilegan heimilismat og skyndibita eins og hamborgara, pítsur og samlokur. Þá er einnig gott að tylla sér niður á Kríunni og fá sér góðan kaffibolla og sætan mola með.
Stuttur spölur er að líflegri smábátahöfn og tilvalið að sporðrenna einni pylsu með öllu þar.
Krían þjónustar einnig bifreiðaeigendur með eldsneyti, bílavörur o.fl.
Upplýsingar
Heimilisfang | Strandgata 13 |
---|---|
Staður | 735 Eskifjörður |
Netfang | kriaehf@simnet.is |
Sími | +354 476 1383 |
Vefur | Sjá vefsíðu |