Gistihúsið Mjóeyri
Gistiheimilið er rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð
Ferðaþjónustan á Mjóeyri er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Sævars Guðjónssonar og Berglindar Ingvarsdóttur.
Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri, rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð.
Húsið er nýlega innréttað, var byggt árið 1895 og ber merki gamalla og nýrra tíma. Lögð er áhersla á hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.
Stórkostlegt útsýni er út fjórum, eins tiltveggja manna herbergjum með sameiginlegum eldhúskrók, setustofu með sjónvarpi og góða hreinlætissaðstöðu. Útvarp og sjónvarp er í öllum herbergjum. Reyklaust umhverfi er innandyra. Stór sólpallur er við innganginn á neðri hæð og þaðan er einnig gengið inn í svefnskála með svefnpokaplássi. Í svefnskálanum er eldunar- og hreinlætisaðstaða. Á sólpallinum er stórt gasgrill sem gestum er frjálst að nota.
Á Mjóeyri er einnig baðhús, með þvottaaðstöðu, klósettum, sturtum, sauna og heitum potti.
Upplýsingar
Heimilisfang | Strandgata 120 |
---|---|
Staður | 735 Eskifjörður |
Netfang | mjoeyri@mjoeyri.is |
Sími | +354 477 1247 |
Vefur | Sjá vefsíðu |